Á vörubílaverkstæði Vélaverkstæði Þóris er boðið upp á viðgerðir og viðhald fyrir allar helstu gerðir vörubíla. Verkstæðið er vel búið tækjum og sérhæfðum greiningartólum sem gera okkur kleift að þjónusta bæði nýleg og eldri ökutæki af öllum stærðum og gerðum. Lögð er áhersla á hraða, örugga og faglega þjónustu sem hentar bæði einstaklingum og fyrirtækjum.